Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 21. nóvember 2024

Gjósa tók á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga í gærkvöld skömmu eftir ellefu og gaus á þriggja kílómetra sprungu þegar mest var. Hún hefur styst og nokkuð dregið úr krafti gossins. Hraun fór yfir Grindavíkurveg í nótt og nálgast Bláa lónið. Það rennur hratt fram.

Hátt í sextíu voru í bænum þegar fór gjósa. Lúðrar voru þeyttir en ekki heyrðu allir í flautunum. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir rýmingin hafi gengið vel og ekki tilefni til endurskoða verklag. Hægt rýma bæinn hratt þegar á þarf halda.

Rafmagnslaust var í Grindavík um tíma í morgun en það er aftur komið á. Hraun flæðir yfir Njarðvíkuræð en hvergi er heitavatnslaust.

Úkraínumenn segja Rússa hafa skotið langdrægri flaug sem getur borið kjarnavopn í morgun. Slíkum flaugum er hægt beina skotmörkum í allt sex þúsund kílómetra fjarlægð.

Formaður samninganefndar sveitarfélaganna segir viðræður við kennara ganga vel. Margt þó óleyst og engar líkur á skrifað verði undir samninga í dag.

Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn gaf í morgun út handtökuskipun á hendur forsætisráðherra Ísraels.

Samfylkingin bætir við sig talsverðu fylgi í nýrri könnun Maskínu. Viðreisn mælist með yfir tuttugu prósent en Vinstri græn aðeins þrjú prósent. Framsóknarflokkurinn og Sósíalistar tapa mestu á milli kannana.

Frumflutt

21. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,