Dómsmálaráðherra segir íslenskt samfélag öruggara eftir að morðingjanum Angelin Sterkaj var vísað úr landi. Hann fær aldrei aftur að stíga inn á Schengen-svæðið.
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir aðhald peningastefnu Seðlabankans of mikið og hagkerfið að kólna. Samtökin vilja að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum í næstu viku.
Nýja vatnslögnin til Vestmannaeyja skemmdist um borð í skipi verktaka. Hvorki Vestmannaeyjabær né verktakinn vilja tjá sig um hvað gerðist.
Aðild að Evrópusambandinu var nauðsynleg fyrir framtíð sænsks landbúnaðar, segir skrifstofustjóri sænsku bændasamtakanna í Brussel. Evrópumál voru rædd á opnum fundi Bændasamtaka Íslands í morgun.
Við inngöngu í ESB væri hætta á því að verðmæti í íslenskum sjávarútvegi færðust úr landi, segir framkvæmdastjóri S- F- S.
Þúsundir hafa þurft til að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda nærri strandborginni Split í Króatíu. Minnst tíu eru á gjörgæsludeild.
Langar raðir mynduðust í Leifstöð í morgun, enda fóru fjórðungi fleiri farþegar um flugstöðina en venjulega á föstudegi. Sólmyrkvaferðamenn tínast úr landi einn af öðrum.
Blásturshljóðfærahátíðin Windworks í norðri er nú haldin í fimmta sinn á Norðurlandi. Við lítum við á æfingu í fréttatímanum.