Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 17. janúar 2025

Ráðherrar í öryggisráði Ísraels sitja á fundi þar greiða á atkvæði um vopnahlé á Gaza. Vopnahléið á taka gildi á miðnætti á morgun.

Undirbúningsframkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar standa enn yfir - þrátt fyrir héraðsdómur hafi felld virkjanaleyfi úr gildi. Forstjóri Landsvirkjunar segir líklegt framkvæmdum verði hætt á næstu vikum.

Glerhálka á Grindavíkurvegi var helsta ástæða banaslyss í janúar í fyrra, þegar fólksbíll og vörubifreið rákust saman. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Saksóknari í Þýskalandi telur ólíklegt sem er helst grunaður um hvarf Madeleine McCann verði ákærður á næstunni vegna skorts á sönnunargögnum. Maðurinn situr í fangelsi fyrir kynferðisbrot.

Gul viðvörun tekur gildi á sunnan- og austanverðu landinu seint í kvöld vegna austan og norðaustan hvassviðris eða storms. Vegagerðin varar við versnandi færð.

Fyrsta skóflustungan Fossvogsbrú verður tekin í hádeginu. Brúin er hluti af Samgöngusáttmálanum og fyrsta stóra framkvæmd Borgarlínu.

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hóf heimsmeistaramótið á sigri gegn Grænhöfðaeyjum í gær. Þrátt fyrir sigurinn vill þjálfari liðsins betri frammistöðu frá liðinu.

Frumflutt

17. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,