Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 8. janúar 2025

Neyðarástand er í Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem skógareldar breiddust út í gær á ógnarhraða. Tugir þúsunda hafa þurft flýja heimili sín.

Matvælastofnun hefur áhyggjur af því skætt afbrigði fuglaflensu berist í spendýr hér á landi, bæði í villt dýr og húsdýr á borð við hunda og ketti. Tíu vikna kettlingur drapst fyrir nokkrum vikum úr veirunni.

Veitingastaðurinn Flame þarf greiða starfsfólki þrjár og hálfa milljón, auk dráttarvaxta til leiðréttingar á vangoldnum launum, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjaness. Formaður Matvís, sem rak málið fyrir dómi, segir þetta fullnaðarsigur og staðfesta túlkun félagsins á kjarasamningum.

Lögregla og tollur lögðu hald á metmagn maríjúana í fyrra, yfir 283 kíló. Sérfræðingur hjá ríkislögreglustjóra segir þetta hafa náðst í fáum en stórum málum, og þeim fari fjölgandi.

Næsti kanslari Austurríkis gæti komið úr Frelsisflokknum, sem er lengst til hægri í austurrískum stjórnmálum. Leiðtogi flokksins er með umboð til stjórnarmyndunar. Viðræður annarra flokka sigldu í strand um helgina.

Dómsmálaráðherra ætlar funda með ríkissaksóknara og vararíkissaksóknara á allra næstu dögum og segir langvarandi deilur þeirra skaða hagsmuni almennings.

Stjórnvöld í Bandaríkjunum saka RSF-herinn í Súdan um þjóðarmorð og beita leiðtoga hans viðskiptaþvingunum. Tæp tvö ár eru síðan landið steyptist í blóðugt borgarastríð.

Frumflutt

8. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,