Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 1.júlí 2024

Þjóðfylkingin, flokkur Marine Le Pen, hlaut flest atkvæði í þingkosningum í Frakklandi í gær. Miðjubandalag, sem flokkur Emmanuels Macron forseta landsins tilheyrir, fékk um fimmtung atkvæða.

Formaður Læknafélags Íslands óttast minna aðgengi læknum á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins verði til þess bið eftir tíma verði enn lengri.

Færri umsækjendur um alþjóðlega vernd koma í fjöldarhjálparstöð Rauða Krossins en áður. Sviðstjóri segir til skoðunar loka henni með haustinu.

Ólga er meðal íbúa í Grafarvogi vegna hugmynda um þéttingu byggðar. Formaður íbúaráðs hverfisins skilur áhyggjurnar.

Guðrún Karls- Helgudóttir tók við embætti biskups Íslands í morgun. Hún verður vígð í haust; verkefnið framundan leiða kirkju í breyttu samfélagi.

Sláttur er kominn vel á veg í Eyjafirði eftir nokkurra vikna seinkum. Hægar gengur í Þingeyjarsveit og Hörgársveit.

Heimir Hallgrímsson stýrði í nótt sínum síðasta landsleik fyrir karlalandslið Jamaíku í fótbolta. Liðið tapaði þriðja leik sínum á Copa América. Ekki náðist sátt um framtíðarsýn fyrir landsliðið og því sagði hann upp.

Frumflutt

1. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,