Úkraínumenn og bandamenn þeirra þurfa að mæta Rússlandsforseta af mun meiri hörku, þetta segir Úkraínuforseti ; eitt þúsund dagar eru frá allsherjarinnrás Rússlandshers. Stríðið er það mannskæðasta í Evrópu frá seinni heimsstyrjöld.
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir dæmi um að kjötafurðastöðvar séu byrjaðar að samræma verð á markaði og erfiðara sé fyrir matvöruverslanir að semja um hagstæð kjör eftir umdeildar breytingar á búvörulögum.
Líklegt þykir að skemmdarverk hafi valdið bilun tveggja sæstrengja í Eystrasalti í vikunni. Forstöðumaður netöryggissveitarinnar segir skoðað hvernig eigi að bregðast við þeirri ógn á Íslandi.
Minnst 40 sjúkrahús hafa orðið fyrir skemmdum í árásum Ísraelshers á Líbanon undanfarna mánuði og átta þeirra eru óstarfshæf. Fleiri en 200 heilbrigðisstarfsmenn hafa verið drepnir við vinnu sína í Líbanon undanfarna tvo mánuði.
Foreldrar leikskólabarna komu saman í Ráðhúsi Reykjavíkur í hádeginu til að mótmæla verkfalli. Samningafundur í kjaradeilu kennara við ríkið hefst eftir hádegi.
Grindvíkingar sem seldu fasteignafélaginu Þórkötlu heimili sín geta samið um afnot af húsnæðinu gegn því að sinna viðhaldi og greiða hita og rafmagn. Framkvæmdastjóri Þórkötlu segir að þannig geti fólk haldið tengslum við húsið.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir alþingiskosningarnar hófst á Kanaríeyjum í morgun. Kosið er á veitingastað og eigandinn segir kjörsókn góða.