Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 14. febrúar 2026

Bandaríkin eru ekki horfin frá hugmyndinni um bandalag vestrænna þjóða, sagði utanríkisráðherra Bandaríkjanna á öryggisráðstefnunni í München í morgun. Ræðu hans var beðið með nokkurri spennu.

Um þriðjungur skóla í höfuðborg Úkraínu eru án húshitunar eftir árásir Rússlandshers. Rússar hafa gert þungar árásir á orkuinnviði landsins á síðustu vikum.

Sigurður Ingi Jóhannsson flytur sína síðustu ræðu sem formaður Framsóknarflokksins í dag. Flokksþing Framsóknar hófst í morgun þar sem allra augu eru á formannsslagnum milli Ingibjargar Isaksen og Lilju Alfreðsdóttur.

Rósin, landsfélag jafnaðarfólks, hefur slitið samstarfi við fulltrúaráð Samfylkingarinnar. Varaformaður segir félagið ósátt við frambjóðandi þess fái ekki sæti á framboðslista flokksins í Reykjavík.

Vefsíða þar sem persónuupplýsingar um bandaríska alríkisfulltrúa voru birtar undir íslensku léni er á borði lögreglu. Innviðaráðherra vill breyta lögum um noktun íslenskra léna.

Prestar Digraneskirkju vinna fyrir kaupinu sínu dag þar sem boðið verður upp á skyndi-giftingar í tilefni af degi elskenda. Átta pör verða gefin saman.

Jón Erik Sigurðsson er í 38. sæti eftir fyrri ferðina í stórsvigi karla á Vetrarólympíuleikunum. Búast við honum í seinni ferðina upp úr klukkan eitt.

Birt

14. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,