Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 25. ágúst 2024

Piltur er í haldi grunaður um hafa stungið þrjú ungmenni með hnífi í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir miðnætti. Einn er í lífshættu.

Tveggja sólarhringa neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Ísrael vegna flugskeytaárása Hezbollah-hreyfingarinnar í nótt. Sameinuðu þjóðirnar hvetja stríðandi fylkingar til gera allt til koma í veg fyrir stigmögnun.

Enn gýs á tveimur stöðum norðan við Stóra-Skógfell. Gróðureldar breiddu ekki úr sér í nótt en slökkviliðið fylgist vel með. Gos- og gróðureldamengun gæti lagt yfir Reykjanesbæ og Voga á morgun.

Óvissustig almannavarna vegna rigninga og skriðuhættu á Tröllaskaga er enn í gildi - en dregið hefur úr rigningu á norðanverðu landinu síðasta sólarhringinn.

Borgarfulltrúi Flokks fólksins sakar borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um óviðunandi framkomu á fundum. Meirihlutinn láti hana viðgangast, sem skýrt dæmi um ofbeldismenningu.

Eigandi samfélagsmiðilsins Telegram var handtekinn í Frakklandi í gær. Hann yfirgaf Rússland fyrir nokkrum árum eftir hafa neitað deila upplýsingum um notendur miðilsins með þarlendum stjórnvöldum.

Bandarískir geimfarar neyðast til dvelja níu mánuði í Alþjóðlegu geimstöðinni, en ekki átta daga eins og til stóð. Geimfarið er bilað og því þarf bíða eftir því næsta.

Stjarnan og Þróttur berjast í dag um síðasta sætið í efri hluta úrvalsdeildar kvenna í fótbolta áður en úrslitakeppnin hefst. Lokaumferð deildarkeppninnar verður spiluð í dag.

Frumflutt

25. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,