Ríflega fimm hundruð manns þurftu að leita skjóls vegna óveðurs og ófærðar í gærkvöld og nótt. Sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum segir samtakamátt hafa skipt sköpum þegar fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar á Blönduósi og í Reykjaskóla í Hrútafirði.
Búið er að opna alla vegi nema um Dynjandisheiði. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi.
Bretar vinna að áætlun með bandamönnum sínum um opnun Hormússunds, milli Persaflóa og Ómanflóa. Bandaríkjaforseti segir það vont fyrir framtíð NATO ef bandalagsþjóðir koma ekki til aðstoðar í Íran.
Stjórnvöld gera ráð fyrir að fjölga hjúkrunarrýmum um fimmtán hundruð næstu fjögur árin. Yfir 500 biðu eftir hjúkrunarrými í byrjun árs, en stjórnvöld áætla að enginn verði á biðlista í árslok 2029.
Byggingafyrirtæki krefur íslenska ríkið um 850 milljónir í bætur vegna tjóns sem það hafi orðið fyrir við byggingu hjúkrunarheimilis á Höfn í Hornafirði.
Lokamálflutningur í réttarhöldum yfir Mariusi Höiby, syni norsku krónprinsessunnar, hófst í dag. Hann hefur neitað sök í nær öllum ákæruliðum.
Kvikmyndin Hver orrustan á fætur annarri One Battle After Another kom, sá og sigraði á Óskarsverðlaunahátíðinni í gærkvöld og hlaut sex verðlaun. Syndarar Sinners, sem fékk metfjölda tilnefninga, hlaut fern.
Ísland á þrjá keppendur á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum innanhúss sem hefst í Póllandi á föstudag.