Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 28. júní 2024

Joe Biden Bandaríkjaforseti olli Demókrötum vonbrigðum í fyrstu forsetakappræðunum við Donald Trump. Sérfræðingur í kappræðum segir frammistöðu hans líklega þá verstu í sögunni.

Íslensk heimili flykkjast í verðtryggð lán samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hagstofunnar. Útlit er fyrir verðbólgan hjaðni hægar en áður var talið.

húsaleigulög sem samþykkt voru rétt fyrir þinglok duga skammt mati leigjendasamtakana. Þau segja ástandið á húsnæðismarkaði skýrast af skilningsleysi stjórnvalda og gróðavon fjárfesta.

Betur þarf kortleggja stöðu aldraðra og fatlaðra Grindvíkinga og finna lausnir ef glufur eru í kerfinu segir formaður Grindavíkurnefndar.

Landris hefur aukist síðustu daga í Svartsengi. Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðingur segir haldi landris áfram á þessum hraða - megi búast við öðru gosi.

Meirhluti sveitarstjórnar í Þingeyjarsveit er sprunginn. Þrír af fimm fulltrúum meirihluta E-lista sögðu skilið við listann á fundi sveitarstjórnar í gær.

Orkumótið er hafið í Vestamannaeyjum og þúsundir eru þangað komnar til eyða helginni á knattspyrnumótinu.

Hornfirðingar íhuga breyta Humarhátíðinni sinni og upphefja kartöflur í staðinn enda ekki lengur veiða humar. Á morgun greiða þeir atkvæði um málið á hátíð hinnar hornfirsku kartöflu.

Fyrri undanúrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna í fótbolta fer fram í kvöld. Breiðablik getur komið sér í úrslit bikarkeppninnar fjórða árið í röð.

Frumflutt

28. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,