Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 10. ágúst 2024

Ísraelsher er sagður hafa drepið hátt í hundrað Palestínumenn í loftárás á grunnskóla á Gaza í morgun. Ísraelsmenn segja skólann hafa verið bækistöð Hamas-liða.

Forsvarsmenn rússnesku kjarnorkustofnunarinnar segja innrás Úkraínuhers í Kúrskhérað bein ógn við öryggi kjarnorkuvers á svæðinu.

Engin merki um aflögun hafa mælst við kvikuganginn á Reykjanesskaga, enn sem komið er. Rafleiðni í Skálm og Múlakvísl hefur lækkað síðan í morgun.

Íslenskt menntakerfi gjörbreytist á næstu árum, segir ráðherra málaflokksins, sem leggur þrjú frumvörp um breytingar á grunnskólalögum fyrir þingið þegar það kemur saman.

Fulltrúi í foreldraráði leikskólans Brákarborgar segir aðstæður í nýju bráðabirgðahúsnæði við Ármúla hafa komið sér ánægjulega á óvart. Þó ýmislegt ekki eins og best verði á kosið hafi mikil vinna verið lögð í gera húsið sem best úr garði til taka þar á móti leikskólabörnum á mánudagsmorgun.

Einn af þátttakendunum í árásinni á bandaríska þinghúsið fyrir þremur árum hlaut í gær næstþyngsta dóm sem fallið hefur vegna hennar, tuttugu ára fangelsi.

Gleðigangan og útihátíð hinsegin daga í Reykjavík fer fram í dag. Fólk er í óðaönn skreyta vagna og farartæki fyrir gönguna sem hefst klukkan tvö

Frumflutt

10. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,