ok

Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 31. janúar 2025

Ólíklegt er að tillaga ríkissáttasemjara verði til þess að leysa kjaradeilu kennara. Kennarar, og samninganefndir ríkis og sveitarfélaga sitja nú á fundum, hver í sínu lagi - Allir eru sammála um að mikið sé í húfi.

Suðaustanstormur skellur á vestanverðu landinu í hádeginu. Vegir gætu lokast með skömmum fyrirvara og ofanflóðahætta skapast í byggð á sunnanverðum Vestfjörðum.

Auknar líkur eru á eldgosi á Reykjanesskaga og hættustig í gildi. Lögreglustjórinn biður fólk að vera ekki á hættusvæðum að óþörfu á meðan vonskuveður gengur yfir.

Byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar hefur stöðvað framkvæmdir við kjötvinnslu í umdeildu vöruhúsi við Álfabakka í Breiðholti. Ekki liggur fyrir hvort kjötvinnslan hafi verið tilkynnt til Skipulagsstofnunar.

Aðeins einn flugumferðastjóri, en ekki tveir, sinntu flugumferðastjórn á Reagan-flugvelli í Washington þegar mannskætt slys varð á miðvikudag. Enn er of snemmt að segja til um ástæðu slyssins.

Leikar gætu farið að æsast í formannsslagnum í Sjálfstæðisflokknum - ákvörðunar tveggja þingmanna, sem orðaðir hafa verið við framboð er að vænta á næstu dögum.

Markaðir fyrir íslenskar loðnuafurðir eru galtómir og hætt er við að erlendir kaupendur snúi sér annað ef engin loðna veiðist hér á næstunni. Efnahagslega yrði höggið mest ef ekki tekst að selja loðnu til Japans.

Minnstu munaði að tvær flugvélar lentu saman yfir Skerjafirði í febrúar í fyrra. Athygli flugumferðarstjóra var á fótboltaleik.

Frumflutt

31. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,