Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 27. október 2024

Ummæli formanns Samfylkingarinnar um Dag B. Eggertsson eru vís til auka togstreitu innan flokksins, sögn stjórnmálafræðings. Það mælist misjafnlega fyrir tala um einn áhrifamesta stjórnmálamann í sögu flokksins sem aukaleikara.

Bjarni Jónsson, þingmaður, hefur gengið til liðs við nýstofnað framboð Græningja og verður á framboðslista flokksins í kosningunum. Fjórir flokkar hafa þegar birt framboðslista í öllum kjördæmum. Fleiri listar eru væntanlegir í dag.

Stjórnarandstæðingar í Georgíu neita viðurkenna úrslit kosninganna í gær. Georgíski draumurinn heldur meirihluta sínum á þingi en greint hefur verið frá ofbeldi og misferli á kjörstöðum.

Icelandair hættir flytja gæludýr með farþegaflugi frá 1. nóvember. Ákvörðunin kemur hundaeigendum afar illa, segir formaður Hundaræktarfélags Íslands, og gríðarlegt högg því langstærstur hluta hunda er fluttur hingað til lands með Icelandair.

Fyrirhugað vindorkuver í Fljótsdal yrði risavaxin framkvæmd en rafeldsneytið sem framleitt yrði með orkunni á Reyðarfirði gæti líka sparað útblástur á við mestalla losun íslenska fiskiskipaflotans.

Örn Bárður Jónsson prestur flutti sálminn Um dauðans óvissan tíma eftir Hallgrím Pétursson við messu í morgun. Sálmurinn er vel þekktur og oft fluttur, en í morgun var hann fluttur í helild sinni utanbókar og er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert, því er flytjandinn telur.

Það ræðst í kvöld hvort það verður Víkingur eða Breiðablik sem hampar Íslandsmeistaratitili karla í fótbolta. Fara þarf áratug aftur í tíman til finna jafn spennandi lokaumferð á Íslandsmótinu.

Frumflutt

27. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,