Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 17. september 2023

Ekkert hefur enn spurst til Íslendings sem átti flug frá Dómíníska lýðveldinu til Þýskalands fyrir viku. Fjölskyldan er hrædd um hann annaðhvort í fangelsi eða á sjúkrahúsi og geti þess vegna ekki látið vita af ferðum sínum.

Tvö flutningaskip komu til hafnar í Úkraínu í gær, þau fyrstu síðan Rússar sögðu sig frá samningi um öruggar siglingaleiðir. Til stendur þau flytji hveitikorn til Egyptalands og Ísraels.

Mikilvægt er læknar og heilbrigðisstarfsfólk viðurkenni mistök í starfi umsvifalaust. Þetta segir norskur læknir sem var valdur dauða kornabarns fyrir tíu árum. Alþjóðlegur dagur öryggis sjúklinga er í dag.

Stefnt er opnum kynningarfundum um breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur og umhverfismats vegna Sundabrautar í byrjun næsta mánaðar. Framkvæmdir gætu hafist árið 2026.

Efni í bloggfærslum Páls Vilhjálmsonar kennara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ hafa áhrif á menningu skólans og skapa jarðveg fyrir fordóma sögn hinsegin nemenda.

Harkaleg handtaka lögreglu í Kaupmannahöfn hefur vakið athygli þar í landi. Piparúða var beitt gegn karlmanni á fimmtugsaldri sem talaði í símann á meðan hann var hjóla. Handtakan er í rannsókn.

Víkingar, nýkrýndir bikarmeistarar karla í knattspyrnu, geta bætt Íslandsmeistaratitli í safnið í dag - án þess þó spila leik.

Frumflutt

17. sept. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,