Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 27. janúar 2025

Utanríkisráðherra Danmerkur segist viss um stuðning annarra ríkja Evrópusambandsins og Íslands í deilunni við Bandaríkjamenn um Grænland. Forsætisráðherrar Norðurlandanna, utan Íslands, ræddu málið á óformlegum fundi í Danmörku í gær.

Hamas-samtökin á Gaza sleppa sex gíslum í vikunni, þar á meðal ísraelskum hermanni sem átti frelsi um helgina. ákvörðun sleppa honum ekki þótti ógna viðkvæmu vopnahléssamkomulagi Hamas og Ísraels.

Stjórnsýslufræðingur segir Flokk fólksins ekki eiga annan kost en endurgreiða þá styrki sem hann hefur fengið frá ríkinu. Það myndi líklega leiða til gjaldþrots flokksins.

Leiga á þriggja herbergja íbúð í Reykjavík nálgast fjögur hundruð þúsund krónur. Þetta segir formaður Leigjendasamtakanna sem telur allt þúsund íbúðir bætist við á leigumarkað í ljósi fyrirætlana ríkisstjórnarinnar um draga úr skammtímaleigu.

Fólk sem lifði af vist í Auschwitz-Birkenau mætti þangað í dag til minnast þess 80 ár eru frá frelsun þess. - Þeir álitu okkur rottur ekki manneskjur, segir einn eftirlifenda um nasista.

rannsókn á vegum RÚV og írska ríkisútvarpsins RTÉ gæti varpað ljósi á örlög Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf sporlaust Í Dublin fyrir sex árum.

Frumflutt

27. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,