Seðlabankinn hækkaði vexti um núll komma tuttugu og fimm prósentustig í morgun. Seðlabankastjóri segir að þrálát verðbólga ráði mestu um hækkunina. Svartsýni gætir á að forsendur kjarasamninga haldi.
Forseti ASÍ segir að bankarnir séu nú þegar með okurvexti og eigi ekki að þurfa að hækka þá meira. þrátt fyrir ákvörðun Seðlabankans.
Rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á eldsvoðanum á Stuðlum leiddi í ljós verulega annmarka á brunavörnum. Talið er að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannslát.
Starfsmaður leikskóla á Akranesi var handtekinn á mánudag, grunaður um kynferðisbrot gegn barni. Ekki var krafist gæsluvarðhalds en lögregla segir rannsókn málsins í algjörum forgangi.
Ísraelsher hefur gert árásir á miðborg Beirút í dag. Varnarmálaráðherra Ísraels segir íranskan ráðherra hafa fallið í gær.
Fimm karlar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald grunaðir um alvarlega líkamsárás á þrjá menn í Reykjavík aðfaranótt þriðjudags. Einn er á gjörgæsludeild eftir árásina.
Umfjöllun fréttaskýringarþáttarins Kveiks í gærkvöld er lýsandi fyrir aðstæður dýra í loðdýrarækt, segir formaður Dýraverndarsamtaka Íslands. Hún segir brýnt að herða lög um velferð dýra og gera Matvælastofnun kleift að sinna eftirliti.
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta er úr leik í forkeppni Evrópumótsins þrátt fyrir sigur á Portúgal í gærkvöld.