Hið fornfræga hús Børsen í Kaupmannahöfn stórskemmdist í eldsvoða í morgun. Enn er barist við eldinn. Byggingin hefur verið hornsteinn dansks viðskiptalífs í 400 ár.
Sameina á ríkisstofnanir og auka hagræðingu í ríkisrekstri á næstu árum samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í morgun. Fjármálaráðherra segir að ekki verði gripið til niðurskurðar.
Píratar og Flokkur fólksins hafa lagt fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Þingmaður Pírata segir forsætisráðherraskiptin kveikjuna að tillögunni. Forsætisráðherra segir þetta örvæntingarfullt og veikt útspil.
Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðaði í morgun að íslenska ríkið hafi brotið gegn ákvæðum mannréttindasáttmálans um kosningar við Alþingiskosningar 2021. Sérfræðingur í stjórnskipunarrétti segir að taka þurfi eftirlitskerfið til gaumgæfilegrar skoðunar.
Sveitarstjórnir á Norður- og Austurlandi vilja að nýr matvælaráðherra geri breytingar á kerfi strandveiða. Sveitarfélögin töpuðu hálfum milljarði króna í fyrra vegna skyndilegrar stöðvunar veiðanna.
Mánuður er liðinn frá því eldgos hófst á Reykjanesskaga. Það stendur enn og hefur staðið lengst allra eldgosanna á Sundhnjúksgígaröðinni.
Íslandsmeistarar Vals og bikarmeistarar Víkings mætast í Meistarakeppni kvenna í fótbolta í kvöld. Leikurinn markar upphaf fótboltasumarsins hjá konunum.