Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 11. júní 2024

Matvælaráðherra hefur veitt Hval hf. leyfi til veiða 128 langreyðar í ár. Ráðherra segist þurfa fara lögum en ákvörðunin gangi gegn eigin skoðunum.

Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir seinagangur ráðherra hafi þegar slátrað vertíðinni. Hvalfriðunarsinni segir mikil vonbrigði ráðherra hafi skort hugrekki til fylgja eigin sannfæringu.

Hátt settur embættismaður innan Hamas segir samtökin styðja vopnahléstillögur sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöld. Utanríkisáðherra Bandaríkjanna vill hins vegar opinbera staðfestingu frá leiðtoga Hamas á Gaza.

Mælt er með því börn séu inni í dag og íþróttaæfingar utandyra séu felldar niður á höfuðborgarsvæðinu vegna mengunar frá eldgosinu við Sundhnúk. Þetta er ein mesta mengun sem mælst hefur frá því eldsumbrotin hófust á Reykjanesskaga.

Þrjú skemmtiferðaskip með yfir sex þúsund farþegum komu til hafnar á Akureyri í gær og hafa þeir ekki verið fleiri á einum degi það sem af er sumri.

Heimilisiðnaðarfélag Íslands fær formlega sæti á lista Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, í dag, fyrir varðveislu menningararfs. Félagið er hið fyrsta á Íslandi til hljóta þessa viðurkenningu

Dagbjartur Daði Jónsson og Sindri Hrafn Guðmundsson keppa báðir í spjótkasti á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í dag. Dagbjartur hefur þegar lokið keppni og var töluvert frá sínu besta kasti.

Frumflutt

11. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,