Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 3. janúar 2026

Bandaríkjaher gerði loftárásir á minnst sjö stöðum í Venesúela í morgun. Nicolas Maduro forseti landsins var handsamaður og fluttur úr landi. Trump segir hann verði dreginn fyrir dóm í Bandaríkjunum.

Vilhjálmur Árnason þingamaður og ritari Sjálfstæðisflokksins vill leiða lista flokksins í Reykjanesbæ fyrir sveitastjórnarkosningarnar. Framboðsfrestur flokksins og Samfylkingarinnar rennur út um og eftir helgi og framboðin hrannast inn.

Verksmiðja heilsuvöruframleiðandans Kerecis er í viðbragðsstöðu vegna mannskæðs bruna í Sviss. Forstjórinn segir verkefnið umfangsmikið og krefjandi.

Sinueldur brenndi um 7 hektara lands við Djúpavog í gærkvöld. Það tók 10 manna slökkvilið ásamt 10 manna aðstoðarliði þrjár klukkustundir slökkva eldinn.

Nýrri rennibraut í Sundlaug Þorlákshafnar hefur verið lokað vegna fjölda óhappa. Íbúar í bænum segja fólk hafi hlotið höfuðáverka og skurði eftir ferðir í rennibrautinni.

Kjör Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins 2025 verður kunngjört í Hörpu í kvöld. Þá verður lið ársins valið sem og þjálfari ársins.

Frumflutt

3. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,