Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 26.júní 2024

Eldur logar í veitingastað á Höfðatorgi á horni Borgartúns og Katrínartúns. Slökkviliðið er með mikinn viðbúnað.

Julian Assange, stofnandi Wikileaks, faðmaði eiginkonu sína og föður þegar hann lenti í Canberra í Ástralíu í morgun. Assange þakkaði forsætisráðherra Ástralíu fyrir bjarga lífi sínu.

Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu hófst í dag. Sakborningur í málinu neitar hafa orðið tæplega sextugum manni bana.

Tíu börn á dag missa útlimi á Gaza samkvæmt Sameinuðu þjóðunum. Næstum því allir á Gaza búa við fæðuskort, samkvæmt nýrri skýrslu.

Mannréttindastofnun Íslands markar tímamót í mannréttindamálum. Stofnunin verður sjálfstæð og fær víðtækar heimildir til eftirlits.

Hætta vegna fuglaflensu er mestu liðin hjá og Matvælastofnun hefur fellt óvissustig úr gildi. Flensan hefur ekki greinst í neinum villtum fuglum á þessu ári.

Grásleppusjómaður á Patreksfirði óttast milljónatap eftir kvótasetningu grásleppu. Hann hefur fjárfest í tveimur bátum og veiðileyfum en hefur ekki næga veiðireynslu til kvóta.

Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar er andvígur því Hamarsvirkjun fari í verndarflokk. Það séu vonbrigði þing hafi ekki afgreitt ramma um vindorku.

Riðlakeppni EM í fótbolta lýkur í dag með fjórum leikjum. Aðeins eitt af átta liðum er með öruggt sæti í 16 liða úrslitum.

Frumflutt

26. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,