Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 28. desember 2024

Við þurfum bíða og sjá hvort herlið fær aftur varanlega viðveru á Íslandi, segir utanríkisráðherra. Slík viðvera hafi fælingarmátt. Gera þurfi það sem þarf til tryggja öryggi og varnir landsins.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin fordæmir árás Ísraelshers á eina starfhæfa sjúkrahúsið sem eftir var í norðurhluta Gaza. Kveikt var í skurðstofum, nokkrir starfsmenn drepnir og forstjórinn handtekinn. Ísraelsmenn segja spítalann hafa verið vígi hryðjuverkamanna, en Hamas þvertaka fyrir það.

Óeining er innan Sjálfstæðisflokksins vegna hugmynda um seinka til hausts landfundi flokksins sem átti vera í febrúar. Bjarni Benediktsson hefur ekki ákveðið hvort hann gefur áfram kost á sér til formennsku.

Björgunarsveitir munu ekki halda áfram leit á Reykjanesskaga í dag, vegna boða sem bárust úr neyðarsendi í gær. Líklegra þykir en ekki merkið hafi verið snet út fyrir slysni eða bilun í búnaði.

Lögreglumaður og almennur borgari eru látnir eftir skotbardaga í Noregi í nótt. Þetta er í fyrsta skipti í tuttugu ár sem norskur lögreglumaður er drepinn við skyldustörf.

Rekstrarstjóri Í Bláfjöllum segir frábært færi og nóg pláss fyrir skíðaþyrsta í fjallinu í dag. Opið er frá tíu til fimm í dag.

Cadbury's, hinn rótgróni breski súkkulaðiframleiðandi, er í fyrsta sinn í 170 ár ekki með konunglegan stimpil. Karl konungur tók fyrirtækið af þeim lista við uppfærslu, en bætti öðrum súkkulaðiframleiðendum við í staðinn.

Frumflutt

28. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,