Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 24. nóvember 2024

Vinna við hækkun varnargarða og kælingu á hrauni við Svartsengi gengur vel og er útlitið betra en það var í gærkvöldi. Verktakar leggja þó ekki árar í bát heldur verður unnið áfram næstu sólarhringa.

Dregið hefur mikið úr virkni miðgígsins í eldgosinu við Sundhnúksgíga. Hraun flæðir samt áfram meðfram varnargörðum í Svartsengi.

Ísland er í hópi þeirra ríkja sem hefðu viljað ganga lengra á COP29, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem lauk í gær. Hart var deilt um niðurstöðu ráðstefnunnar og telja margir hana vonbrigði.

Tæplega sextán þúsund hafa greitt atkvæði utankjörfundar í komandi alþingiskosningum. Kjörsókn er svipuð og í kosningunum fyrir þremur árum.

Oddviti L-lista í Langanesbyggð hefur sagt sig úr sveitarstjórninni eftir áratuga starf. Persónuleg óvild og hagsmunapólitík gerir honum ókleift búa áfram í sveitarfélaginu.

Óánægju gætir meðal Ásatrúarmanna um félag þeirra gerist aðildarfélag Landverndar. Sett hefur verið af stað undirskrifasöfnun til reyna snúa ákvörðuninni.

Hollendingurinn Max Verstappen varð í morgun sjötti ökuþórinn til vinna fjóra heimsmeistaratitla í Formúlu eitt kappakstrinum.

Frumflutt

24. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,