Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 3. júlí 2024

Allt bendir til þess Íhaldsflokkurinn gjaldi afhroð í þingkosningunum í Bretlandi á morgun. Flokkurinn mælist hvergi með öruggt þingsæti.

Ákæra á hendur Alberti Guðmundssyni fótboltamanni var þingfest í morgun. Albert var ekki viðstaddur þinghaldið.

Fangelsismálastofnun fór ekki eftir málefnalegum mælikvörðum við inntöku í fangavarðanám. Verulegir ágallar voru á ákvörðuninni sem ættu leiða til ógildingar, segir í úrskurði dómsmálaráðuneytisins.

Lögregla og Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka hvað gerðist þegar leki kom bát á Faxaflóa í gærkvöld. Einn var um borð og var hann meðvitundarlítill þegar var komið.

Fjölskylda Yazans Tamimi hefur ekki fengið vita hvers vegna fyrirhugaðri brottvísun var frestað.

Íbúar á Jamaíka búa sig undir fellibylurinn Beryl gangi á land síðar í dag. Hann á upptök sín í Atlantshafi. Aldrei áður hefur fimmta stigs fellibylur myndast þar svo snemma árs.

Gríðarleg aukning hefur orðið í kynsjúkdómum, síðustu ár. Lekandi og sárasótt voru nær horfin en í fyrra greindust um 340 með lekanda, þrisvar sinnum fleiri en í hitteðfyrra. Sárasóttartilfelli hafa ekki verið fleiri síðan á miðri síðustu öld.

Allt 14 rúmmetrar af fljótandi biki runnu úr yfirfylltum tanki Vegagerðarinnar á Reyðarfirði í vor. Bikið stíflaði lagnir og fauk langar leiðr með tilheyrandi óþrifnaði. Enn er verið hreinsa það.

Joe Biden Bandaríkjaforseti viðurkennir hafa nærri sofnað í kappræðunum við Donald Trump í síðustu viku. Mikil þreyta sökum sífelldra ferðalaga skýri slaka frammistöðu.

Frumflutt

3. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,