Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 5. febrúar 2026

Ofbeldisbrot sem tíu menn segjast hafa orðið fyrir í fóstri í Bakkakoti á Suðurlandi eru líklega fyrnd, sögn lögreglustjóra. Forsætisráðherra hittir nokkra þeirra ásamt lögmönnum í hádeginu.

Staða Keirs Starmer sem forsætisráðherra Bretlands hefur aldrei verið veikari, hvernig hann hefur farið með mál Peters Mandelsons vekur ekki aðeins óánægju hjá andstæðingum, heldur líka samflokksmönnum.

Forsætisráðherra viðurkennir mikla verðbólgu í janúar megi hluta rekja til breytinga sem ríkisstjórnin gerði um áramót. Hins vegar engin ástæða til breyta um stefnu.

Um tveggja ára gamalt barn var skilið eitt eftir á leikskóla í Breiðholti þegar honum var lokað á mánudag. Þetta er í annað sinn sem slíkt gerist í Reykjavík á einu ári.

Sveitarfélög þurfa huga betur hættu vegna sjávarflóða og þeir sem skipuleggja og byggja hús við fjöruborðið geta ekki vænst þess tjón bætt. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur varað sveitarfélög og húseigendur við þessu.

Stór hluti innflytjenda nýtti ekki kosningarétt sinn í síðustu sveitarstjórnarkosningum, Reykjanesbær ætlar halda vinnustofur í mars til auka kosningaþátttöku þeirra.

Keflavík og Grindavík mætast í nágrannaslag í úrslitum bikarkeppni kvenna í körfubolta. Þetta varð ljóst eftir æsispennandi undanúrslit í gærkvöld.

Birt

5. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,