
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Formaður Starfsgreinasambandsins telur að verðfrystingar einstakra fyrirtækja dugi ekki til að draga úr verðbólgu og tryggja frið á vinnumarkaði. Mikilvægara sé að ríki og sveitarfélög stilli gjaldskrárhækkunum í hóf.
Mál Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi ráðherra, hefur rýrt trúverðugleika Flokks fólksins og formannsins Ingu Sæland að mati stjórnmálafræðings.
Þjóðgarðsvörður á Þingvöllum segir mikilvægt að nýtt þjónustugjald sem á að leysa bílastæðagjöld af hólmi á næsta ári renni óskert inn í rekstur þjóðgarðsins.
Landsleikur Íra og Ísraela í Þjóðardeildinni í knattspyrnu er í uppnámi og óljóst hvort hann verður spilaður. Blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar vegna leiksins var frestað í morgun.
Nokkuð hefur verið um skriðuföll og grjóthrun á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum vegna mikillar úrkomu síðustu daga. Skriðuviðvaranir verða í gildi fram á mánudag.
Þrýstingur á lögreglu í Suður-Afríku jókst enn frekar í morgun, þegar kona fannst látin austur af Jóhannesarborg – sú tíunda á aðeins tveimur mánuðum.
Uppskerutími stendur nú sem hæst, garðyrkjubændur eru ánægðir með uppskeruna.

Útvarpsfréttir.