Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 15. nóvember 2024

Vonskuveður er á landinu í dag og á morgun. Flug fellur niður, búist er við öflugum vindhviðum suðaustanlands.

Útgjöld ríkisins vegna hælisleitenda eiga dragast saman um tæpa tvo milljarða á næsta ári. Fjárlagafrumvarpið var rætt á þingi í morgun og er stefnt á afgreiða það eftir helgi. Persónuafsláttur örorku- og eftirlaunaþega sem búa erlendis fellur ekki niður um áramót eins og til stóð.

Tilnefning Roberts Kennedys í embætti heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna er harðlega gagnrýnd. Hann er sagður hættulegur heilsu þjóðarinnar.

Dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóri kynntu í morgun þrettán aðgerðir til þess auka skilvirkni landmæravörslu. Ráðherra væntir þess greiningarmiðstöð verði flutt úr Reykjavík á Keflavíkurflugvöll á næsta ári.

Tíu dagar eru í boðað verkfall lækna og samninganefndir sitja við. Nauðsynlegasta læknisþjónusta verður veitt. Formaður Læknafélagsins, segir það þurfi meta hvert tilvik.

Rúmlega 67 þúsund erlendir ríkisborgarar eru búsettir hér á landi. Hátt í fimmtungur mannfjöldans.

Frumflutt

15. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,