Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 27. september 2026

Stjórnvöld í Íran segjast hvergi hvika frá skilyrðum sínum um opnun Hormússunds, þrátt fyrir að Bandaríkjaforseti hafi hafnað þeim í gær.

Einn var fluttur á sjúkrahús eftir hópur ungmenna veittist að pilti og manni í Mjóddinni í Breiðholti í gærkvöld. Ungmennin hafa áður komið við sögu lögreglu.

Mótmælendur á Norður-Írlandi komu í morgun í veg fyrir að liðsmenn Óraníureglunnar fengju að halda umdeilda skrúðgöngu, sem bönnuð hefur verið í hartnær 30 ár. Minningar um ofbeldi í tengslum við gönguna liggja þungt á þjóðarsál Norður-Íra.

Þeim sem þiggja fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ hefur fækkað um rúmlega áttatíu prósent síðan 2023. Bæjarstjóri segir ekki hægt að skýra þróunina með brottflutningi.

Gagnavers-risinn AtNorth vill byggja tjaldsvæði fyrir Bílaklúbb Akureyrar í skiptum fyrir að fá að stækka lóð sína inn á svæði klúbbsins.

Ungmenni á vesturlandi vilja aukið aðgengi að íþrótta- og frístundastarfi, starfrækja ungmennahús í sveitarfélögum og betri heilbrigðisþjónustu og almenningssamgöngur. Ungmennaþing Vesturlands fór fram í Borgarnesi um helgina

Fyrirliði karlalandsliðsins í fótbolta segir liðið verða að læra það að spila gegn andstæðingum sem eru metnir lakari. Ísland gerði jafntefli gegn Eistlandi í gær og mætir Lúxemborg ytra á þriðjudag.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,