Fjármálaráðherra segir ekki koma til greina að stíga inn í kjarasamninga á kostnað hallalausra fjárlaga – þau séu mikilvægasta aðgerð ríkisins til að draga úr vöxtum og verðbólgu.
Tveir af helstu erindrekum Bandaríkjaforseta eru komnir til Moskvu til að ræða áætlun um hvernig eigi að ljúka innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Þeir eiga svo að fara til Úkraínu á morgun.
Yfir 40 þúsund íbúar á höfuðborgarsvæðinu urðu rafmagnslausir í rúma klukkustund í gærkvöld. Í Mjóafirði hefur verið fjarskiptalaust í rúman sólarhring vegna bilunar í ljósleiðara.
Svartklæddir mótmælendur með lambhúshettur mótmæltu komu flóttafólks til Bretlands með því að loka fyrir umferð til og frá höfninni í Dover í morgun. Margra kílómetra langar bílaraðir mynduðust.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta að hætta notkun svokallaðs Mercator-heimskorts og taka upp annað -- sem sýnir stærð ríkja í réttu hlutfalli.
Norska hirðin segir allt að sjö klukkustunda bið sé eftir því að votta Haraldi Noregskonungi virðingu sína. Röðin nær um kílómetra frá kapellunni.
Hótel- og matvælaskólinn fagnar þrjátíu ára afmæli í í dag, með alls kyns matarkynningum, kleinuhringjakeppni, þrautabraut fyrir þjóna og fleiru. Við kíkjum í veisluna í fréttatímanum.