Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 4. september 2026

Ríkisendurskoðandi heldur stöðu sinni - forsætisnefnd Alþingis hefur lokið meðferð á máli hans. Hann var sakaður um einelti og starfsfólk lýsti ófremdarástandi á vinnustaðnum.

Mikið var um upplýsingaóreiðu og falsfréttir fyrir ESB þjóðaratkvæðagreiðsluna, segir stækkunarstjóri Evrópusambandsins. Hún harmar ákvörðun landsmanna um hafna aðildarviðræðum.

Tveimur var í morgun bjargað úr göngum vatnsaflsvirkjunar í Nepal, níu dögum eftir hamfaraflóð reið yfir. Talið er nokkur hundruð manns séu enn föst í göngum virkjana. Vonir um finna fleiri á lífi hafa glæðst.

Ritstjóri Víkurfrétta segir fúlt horfa upp á það hið opinbera kaupi auglýsingar á samfélagsmiðlum í auknum mæli. Rekstur héraðsmiðlanna verður sífellt erfiðari.

Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir ekkert kalla á lengingu á útivistartíma tíu til tólf ára barna eins og barnamálaráðherra leggur til. Útivistartíminn hafi reynst vel í forvarnaskyni.

Eftir áralanga bið eru viðgerðir hafnar á leik- og grunnskólanum á Breiðdalsvík. Vatnsskemmdir urðu á húsinu vegna leka. Skólahald verður fært til meðan á framkvæmdum stendur.

Birt

4. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,