Ríkisendurskoðandi heldur stöðu sinni - forsætisnefnd Alþingis hefur lokið meðferð á máli hans. Hann var sakaður um einelti og starfsfólk lýsti ófremdarástandi á vinnustaðnum.
Mikið var um upplýsingaóreiðu og falsfréttir fyrir ESB þjóðaratkvæðagreiðsluna, segir stækkunarstjóri Evrópusambandsins. Hún harmar ákvörðun landsmanna um að hafna aðildarviðræðum.
Tveimur var í morgun bjargað úr göngum vatnsaflsvirkjunar í Nepal, níu dögum eftir að hamfaraflóð reið yfir. Talið er að nokkur hundruð manns séu enn föst í göngum virkjana. Vonir um að finna fleiri á lífi hafa glæðst.
Ritstjóri Víkurfrétta segir fúlt að horfa upp á það að hið opinbera kaupi auglýsingar á samfélagsmiðlum í auknum mæli. Rekstur héraðsmiðlanna verður sífellt erfiðari.
Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir ekkert kalla á lengingu á útivistartíma tíu til tólf ára barna eins og barnamálaráðherra leggur til. Útivistartíminn hafi reynst vel í forvarnaskyni.
Eftir áralanga bið eru viðgerðir hafnar á leik- og grunnskólanum á Breiðdalsvík. Vatnsskemmdir urðu á húsinu vegna leka. Skólahald verður fært til meðan á framkvæmdum stendur.