Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 16. ágúst 2026

Formaður VR segir forsætisráðherra firra sig ábyrgð með því setja ábyrgð á kjarasamningum á aðila vinnumarkaðsins. Ekki hægt kasta skuldbindingum frá sér eins og bolta. Stýrivaxtaákvörðun verður kynnt á miðvikudaginn.

Tinna Bessadóttir, hönnuður og viðburðarstjóri, sakar Hafnarfjarðarbæ um hafa tekið yfir Álfahátíðina í Hellisgerði og hugverk sem hún hafi skapað frá grunni. Hún sakar bæjaryfirvöld um óheiðarleika.

Björgunarlið leitar enn í rústum húsa á Flores-eyju í Indónesíu, eftir öflugan jarðskjálfta á föstudag. Fólk sefur utandyra af ótta við eftirskjálfta og skortur er á hjálpargögnum.

Umferð yfir brúna á Jökulsá á Fjöllum verður takmörkuð næstu vikurnar vegna viðhalds. Bílum verður hleypt yfir nokkrum sinnum á dag, en brúin verður opin á nóttunni. Ryð er farið myndast í köplunum sem halda þessari tæplega áttatíu ára gömlu brú uppi.

Þúsundir hafa þurft flýja skógarelda í Belgíu og á Spáni undanfarin dægur. Allt er gert til reyna hefta útbreiðslu eldanna.

Söngkonan Bonnie Tyler verður borin til grafar í heimabæ sínum í Wales á morgun. Þúsundir aðdáenda fylgdust með í gær þegar kista hennar var flutt áleiðis til Swanse þar sem Tyler fær sína hinstu hvílu.

Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hefur synt í tíu tíma niður Lagarfljótið og kemur Egilsstöðum síðdegis. Hann ætlar sér synda 40 kílómetra til stuðnings Píeta-samtökunum.

Hlynur Andrésson endaði í 45. sæti í maraþoni á EM í frjálsíþróttum í morgun. Baldvin Þór Magnússon átti frábært 10 kílómetra hlaup á mótinu í gærkvöld og setti Íslandsmet.

Birt

16. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,