Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 24. júlí 2026

Staðan verður ekki leyst með viðbótarlaunahækkununum, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins um hugsanlega endurskoðun kjarasamninga í haust. Formaður Starfsgreinasambandsins segir ljóst forsendur þeirra séu brostnar.

Formaður félags hjúkrunarfræðinga segir því miður ekki koma á óvart hlutfall hjúkrunarfræðinga á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum uppfylli ekki öryggiskröfur. Hún segir mikinn létti rannsókn lögreglu á andláti konu á heimilinu fyrr á árinu hafi verið hætt.

Forseti Bandaríkjanna hefur lagt tíu prósenta toll á innflutning frá áttatíu og fimm löndum. Þetta er önnur tilraun hans af þessu tagi en síðustu tollar voru úrskurðaðir ólöglegir. þessu sinni þeir ekki til Íslands.

Neyðarlínan og Fjarskiptastofa kynntu í gær nýtt varanúmer fyrir einn, einn, tvo, til þess bregðast við vandræðum með neyðarsímtöl eftir slökkt var á tvö G og þrjú G fjarskiptakerfum landsins

Líf og fjör verður um land allt um helgina þegar bæjar- og menningarhátíðir laða þúsundir gesta til sín, allt frá Bræðslunni og Mærudögum til Elds í Húnaþingi og Reykholtshátíðar.

Valur og Stjarnan áttu góðan sprett í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í gærkvöld og unnu bæði sína leiki. Jürgen Klopp var svo kynntur til leiks sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands og hann byrjaði á því vara fjölmiðla við.

Birt

24. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,