Staðan verður ekki leyst með viðbótarlaunahækkununum, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins um hugsanlega endurskoðun kjarasamninga í haust. Formaður Starfsgreinasambandsins segir ljóst að forsendur þeirra séu brostnar.
Formaður félags hjúkrunarfræðinga segir því miður ekki koma á óvart að hlutfall hjúkrunarfræðinga á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum uppfylli ekki öryggiskröfur. Hún segir mikinn létti að rannsókn lögreglu á andláti konu á heimilinu fyrr á árinu hafi verið hætt.
Forseti Bandaríkjanna hefur lagt tíu prósenta toll á innflutning frá áttatíu og fimm löndum. Þetta er önnur tilraun hans af þessu tagi en síðustu tollar voru úrskurðaðir ólöglegir. Að þessu sinni ná þeir ekki til Íslands.
Neyðarlínan og Fjarskiptastofa kynntu í gær nýtt varanúmer fyrir einn, einn, tvo, til þess að bregðast við vandræðum með neyðarsímtöl eftir að slökkt var á tvö G og þrjú G fjarskiptakerfum landsins
Líf og fjör verður um land allt um helgina þegar bæjar- og menningarhátíðir laða þúsundir gesta til sín, allt frá Bræðslunni og Mærudögum til Elds í Húnaþingi og Reykholtshátíðar.
Valur og Stjarnan áttu góðan sprett í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í gærkvöld og unnu bæði sína leiki. Jürgen Klopp var svo kynntur til leiks sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands og hann byrjaði á því að vara fjölmiðla við.