Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 2. febrúar 2026

Yfirmaður Palestínu-flóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna segir vopnahlé á Gaza aðeins nafninu til. Ísraelsher drap yfir þrjátíu manns í árásum í gær, þar af sex börn.

Gert er ráð fyrir heildar-bótafjárhæð Náttúruhamfaratrygginga í Grindavík verði um eða yfir 12 milljarðar. Tjónamati þar er nærri lokið.

Karlalandsliðið í handbolta leikur í dag um bronsverðlaun á Evrópumótinu í Herning í Danmörku. Andstæðingarnir eru Dagur Sigurðsson og hans menn í króatíska liðinu.

Framkvæmdastjóri FÍB segir neytendur enn eiga inni lækkun eldsneytisverðs eftir niðurfellingu olíugjalds um áramót. Olíufélögin hafi ekki gripið tækifæri til skerpa á samkeppni.

Formaður BSRB segir þráláta verðbólgu vera áhyggjuefni og huga þurfi aðgerðum fyrir þá sem eiga erfitt með endum saman.

Ísbirnir á Svalbarða hafa þyngst og það kemur vísindamönnum á óvart. Hafísinn hefur minnkað vegna loftslagsbreytinga og því hafa birnirnir leitað upp á land eftir æti og veitt þar hreindýr og rostunga.

Birt

1. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,