Yfirmaður Palestínu-flóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna segir vopnahlé á Gaza aðeins að nafninu til. Ísraelsher drap yfir þrjátíu manns í árásum í gær, þar af sex börn.
Gert er ráð fyrir að heildar-bótafjárhæð Náttúruhamfaratrygginga í Grindavík verði um eða yfir 12 milljarðar. Tjónamati þar er nærri lokið.
Karlalandsliðið í handbolta leikur í dag um bronsverðlaun á Evrópumótinu í Herning í Danmörku. Andstæðingarnir eru Dagur Sigurðsson og hans menn í króatíska liðinu.
Framkvæmdastjóri FÍB segir neytendur enn eiga inni lækkun eldsneytisverðs eftir niðurfellingu olíugjalds um áramót. Olíufélögin hafi ekki gripið tækifæri til að skerpa á samkeppni.
Formaður BSRB segir þráláta verðbólgu vera áhyggjuefni og huga þurfi að aðgerðum fyrir þá sem eiga erfitt með að ná endum saman.
Ísbirnir á Svalbarða hafa þyngst og það kemur vísindamönnum á óvart. Hafísinn hefur minnkað vegna loftslagsbreytinga og því hafa birnirnir leitað upp á land eftir æti og veitt þar hreindýr og rostunga.