Stjórnvöld í Íran eru bæði tilbúin til samningaviðræðna við Bandaríkin eða stríð, segir utanríkisráðherra landsins. Forseti Bandaríkjanna skoðar möguleikann á hernaðaríhlutun í Íran, vegna mótmælanna sem ekkert lát er á.
Þjóðvegur eitt hefur verið lokaður á löngum kafla undir Vatnajökli síðan í gær vegna óveðurs og verður ekki opnaður fyrr en á morgun. Ferðamenn komast ekki að skoða Jökulsárlón og sitja fastir á Hornafirði.
Tveir karlmenn voru handteknir á Selfossi í gær. Málið tengist ekki skipulagðri glæpastarfsemi en lögregla taldi ástæðu til að kalla eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra til að tryggja öryggi.
Sóttvarnalæknir segir ólíklegt að mislingar breiðist út í samfélaginu þrátt fyrir að barn hafi greinst með sjúkdóminn í síðustu viku. Hún hvetur fólk til að kanna hvort það er bólusett.
Sturla Böðvarsson, fyrrverandi ráðherra, þingmaður og bæjarstjóri er látinn, áttræður að aldri.
Fimbulkuldi gerði vart við sig á Norðurlöndum í gær og frost fór í nærri 20 stig í Danmörku. Veður hefur farið hlýnandi en búist er við að snjóþyngd geti valdið usla í Noregi.
Spennugamanmyndin One Battle After Another hlaut flest verðlaun þegar Golden Globe-verðlaunin voru veitt í nótt.
Meta segist hafa lokað yfir hálfri milljón samfélagsmiðlareikninga í Ástralíu eftir að samfélagsmiðlabann fyrir börn yngri en sextán ára tók gildi í desember.