Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 21. janúar 2025

Rýmingum hefur verið aflétt í Neskaupstað. Um 190 Norðfirðingar og Seyðfirðingar hafa þurft vera heiman síðustu daga vegna snjóflóðahættu. Gert er ráð fyrir rýmingum á Seyðisfirði verði aflétt síðar í dag.

Rafmagn er komið til allra heimila á Austurlandi sem urðu rafmagnslaus í áhlaupinu um helgina. Varaafl er þó enn keyrt í dreifbýli. Tugir rafmagnsstaura brotnuðu í óveðrinu

Á annan tug barna þarf vera undir eftirliti lækna alla ævi eftir hafa borðað e.coli-mengaðan mat í leikskólanum Mánagarði í haust. Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa boðað tveggja ára átak til auka vitund fólks um e.coli-smit í kjöti.

Nýr Bandaríkjaforseti, telur Danir láti til leiðast og gefi Grænland eftir. Það svo dýrt fyrir Dani halda Grænlandi uppi.

Umhverfisráðherra ætlar leggja fram frumvarp á fyrstu dögum þingsins til koma í veg fyrir frekari tafir Hvammsvirkjunar og eyða óvissu um framkvæmd laga um stjórn vatnamála.

Það er stutt á milli leikja íslenska karlalandsliðsins í handbolta á heimsmeistaramótinu. Eftir góðan sigur á Slóveníu í gær er komið Egyptalandi á morgun. Egyptar unnu sinn riðil og fara með fjögur stig í milliriðil eins og Ísland.

Frumflutt

21. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,