Mikið fannfergi er á Austfjörðum og hættustig vegna snjóflóða er í gildi á Seyðisfirði og í Neskaupstað. Þar voru hús rýmd í gær og ákveðið í morgun að rýma fleiri á Seyðisfirði. Nokkur stór flóð féllu fyrir ofan Neskaupstað í morgun.
Rafmagn fór af víða á Austurlandi í nótt þegar staurar brotnuðu eða línur slitnuðu vegna ísingar. Viðgerðarmenn frá Rarik eru á leið austur. Viðgerð gæti í verstu tilfellum tekið nokkra daga.
Ekkert netsamband er á Grenivík og nágrenni eftir að ljósleiðari fór í sundur í Fnjóská. Mikill ís er í ánni sem flæðir yfir bakka sína og aðstæður til viðgerðar eru erfiðar.
Greiðslumiðlun netbanka lá niðri í um klukkustund í morgun. Forstjóri Reiknistofu bankanna segir flest benda til að bilunin hafi stafað af kerfisvillum innanhúss. Þær verði greindar betur.
Donald Trump boðar holskeflu nýrra forsetatilskipana um leið og hann tekur við forsetaembættinu í Bandaríkjunum. Hann sver embættiseið í dag.
Vopnahlé á Gaza, sem hófst í gær, hefur haldið. Þrjár konur sem fengu frelsi í gær eftir að hafa verið í haldi Hamas-samtakanna í 15 mánuði fögnuðu frelsi sínu ásamt fjölskyldum sínum.
Bláa lónið áætlar að allt að 140 manns vinni í Hoffelli þegar nýr baðstaður við Hoffellsjökul, hótel og ferðaþjónusta verða tekin þar til starfa.
Ísland og Slóvenía mætast í lokaleik riðlakeppninnar á HM í handbolta í kvöld. Leikurinn er sá mikilvægasti til þessa á mótinu.