Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 19. desember 2024

Dominique Pelicot hlaut þyngsta mögulega dóm í Frakklandi fyrir hafa byrlað eiginkonu sinni árum saman og leyft öðrum mönnum nauðga henni. Fimmtíu aðrir hlutu frá þriggja ára upp í fimmtán ára dóma.

Hugsanlegt er ríkisstjón verði kynnt fyrir jól. Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks Fólksins eiga fund síðar í dag.

Rússlandsforseti vildi á árlegum maraþon-blaðamannafundi sínum í morgun ekki gefa nákvæma tímasetningu á því hvenær Úkraínuher verði hrakinn frá Kursk. Þá kvaðst hann ekki enn hafa hitt Sýrlandsforseta sem nýlega fékk hæli í Rússlandi.

Stærsti jarðskjálfti í yfir þrjátíu ár mældist í Ljósufjöllum á Vesturlandi í gærkvöld. Vísbendingar eru um kvika kunni vera safnast fyrir á miklu dýpi.

Verðbólga stendur í stað milli mánaða og mælist fjögur komma átta prósent. Það hægir á hækkun húsnæðisverðs, en verðbólga án húsnæðis eykst lítillega.

Tveir sögðu sig úr stjórn útgáfufélags Heimildarinnar, áður en ræða átti yfirvofandi yfirtöku á Mannlífi. Stjórnin segir fjölskyldutengsl milli miðlanna komi málinu ekki við.

Fram og Afturelding eru komin í undanúrslit í bikarkeppni karla í handbolta. Vonbrigðin báru leikmann Vals ofurliði leik loknum.

Frumflutt

19. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,