Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 17. desember 2024

Stjórnvöld í Rússlandi heita tafarlausum hefndum vegna morðs á hershöfðingja í Moskvu í morgun. Leyniþjónusta Úkraínu réð hann af dögum í sérstakri aðgerð.

Ritun stjórnarsáttmála Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er hafin sem gefur sterka vísbendingu um myndun ríkisstjórnar þessara flokka í burðarliðnum. Ekkert hefur verið gefið upp um skiptingu ráðuneyta nema þeim verði fækkað.

Verð á sumri matvöru, til dæmis kaffi, hefur hækkað þrefalt meira en almennt verðlag. Formaður Neytendasamtakanna segir engu líkara en farið panta verðhækkanir fram í tímann - birgjar þurfi sýna ábyrgð.

ASÍ hefur þungar áhyggjur af stöðu ætlaðra þolenda Quangs Lés. Brýnt verðandi ráðherrar taki vinnumansal föstum tökum; málið hafi mikið fordæmisgildi.

Borgarstjóri segir mögulegur fyrirtækjaleikskóli Alvotech myndi starfa eftir menntastefnu Reykjavíkurborgar líkt og aðrir leikskólar. Þar yrðu líka önnur börn en börn starfsfólks og forgangsraðað eftir aldri barna.

Ekki var sjá loðnan væri langt komin í hrygningargöngu sinni austur með landinu, í vikulöngum rannsóknarleiðangri sem lauk í gær. Því er ekki talið aðkallandi fara strax eftir áramót í frekari mælingar.

Neyðin er mikil í ár segir kona sem sinnt hefur mataraðstoð á Akureyri undanfarinn áratug.

Verðandi Bandaríkjaforseti sakar ríkisstjórn landsins um leyna upplýsingum um torkennileg loftför sem sést hafa yfir New Jersey. Stjórnvöld hafna þessu.

Ísland á ágætis möguleika á komast áfram á EM kvenna í fótbolta 2025 mati sérfræðings.

Frumflutt

17. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,