Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 15. desember 2024

Leigufélagið Búseti ætlar ekki sætta sig við ellefu þúsund fermetra vöruhús steinsnar frá fjölbýlishúsi sínu í Breiðholti. Félagið gerir kröfur um breytingar.

Tilkynningum til barnaverndar um áhættuhegðun fjölgaði um nærri 18% á fyrstu mánuðum ársins borið frá fyrra ári. Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu kallar eftir samstilltu átaki vegna aukins vanda barna.

Ísraelsmenn hafa gert tugi loftárása á Sýrland í nótt, þeirra sögn til hindra hryðjuverkastarfsemi í landinu. Um 7.600 flóttamenn hafa snúið aftur til landsins frá Tyrklandi eftir valdaskiptin fyrir viku.

Vinna við ritun nýs stjórnarsáttmála Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefst á næstu dögum. Formenn flokkanna vona hægt verði kynna nýja ríkisstjórn fyrir áramót.

Tveir voru handteknir eftir líkamsárás á bar í Breiðholti í gærkvöldi. Svo virðist sem barefli hafi verið beitt við árásina.

Ráðherrar tíu ríkja, þar á meðal Íslands, koma saman í Tallin, höfuðborg Eistlands, á morgun til ræða öryggis- og varnarmál á norðurslóðum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir starfandi utanríkisráðherra sækir fundinn í stað forsætisráðherra.

Frumflutt

15. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,