Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 14. desember 2024

Óvenju þung staða er á Barnaspítala Hringsins vegna RS-veirunnar og yfir hundrað börn hafa þurft leggjast þar inn í vetur. Yfirlæknir vill stjórnvöld bregðist við og fjárfesti í nýju mótefni.

Forseti Suður-Kóreu hefur verið ákærður til embættismissis fyrir herlög sem hann setti á í síðustu viku. Hann hefur vikið úr embætti meðan stjórnarskrárdómstóll tekur mál hans fyrir.

Ríkið þarf koma til móts við sveitarfélög á Suðurnesjum eigi þau sameinast. Verkefnastjórn um sameiningu sveitarfélaganna Reykjanesbæjar, Voga og Suðurnesjabæjar leggur til beðið verði með formlegar viðræður þar til viljayfirlýsing um slíkan stuðning hefur borist frá stjórnvöldum.

Bændur í dreifbýli Múlaþings voru farnir reyta hár sitt og skegg, kveikja í rusli og bölva hrafninum vegna mikilla tafa á sorphirðu sem enginn virtist ætla sinna. Múlaþing biðst afsökunar og segir tafirnar vegna kæru á sorpútboði. Allt komast á rétt ról.

Eftirspurn eftir tónleikum strákasveitarinnar Iceguys hefur slegið öll met. Uppselt er á fimm tónleika á tveimur dögum og meira en 40 þúsund manns hafa keypt miða. Aðdáendur eru bæði börn og fullorðnir.

Upptaka af 12 óútgefnum lögum eftir Michael Jackson fannst fyrir tilviljun á dögunum. Höfundarréttur gæti þó komið í veg fyrir þau muni nokkurn tímann heyrast opinberlega.

Frumflutt

14. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,