Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 7.október 2024

Eitt ár er liðið frá árás Hamas á Ísrael. Í stríðinu sem síðan hófst hafa tugþúsundir verið drepnar og milljónir eiga um sárt binda. Atburða síðastliðins árs er ýmist minnst eða mótmælt um heim allan í dag.

Íslendingur sem þurfti flýja með börn í loftvarnabyrgi þegar hann var með fjölmennan hóp ferðamanna í Ísrael segir innrás Hamas sitja í sér.

Dæmi eru um aldraðir dvelji mánuðum saman á sjúkrahúsinu á Akureyri á meðan þeir bíða eftir plássi á dvalarheimilinu Hlíð, þar sem framkvæmdir standa enn yfir vegna myglu.

Alþingi kemur saman í dag eftir kjördæmaviku og landsfund Vinstri grænna þar sem ályktað var ríkisstjórnarsamstarfið væri á endastöð.

Um fjörutíu prósent af fjárveitingum sem áttu styrkja lögregluna eru gengnar til baka vegna aðhaldskrafna stjórnvalda, sögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknarlögreglumenn hafi þurft leggja verkefni til hliðar til sinna öryggisgæslu á mótmælum.

Bandarísku vísindamennirnir Victor Ambros og Gary Ruvkun deila Nóbelsverðlaununum í læknisfræði í ár. Þeir uppgötvuðu míkróRNA sem hjálpar vísindamönnum skilja hvernig gen virka í líkamanum.

Brýr á þjóðvegi eitt eru svo gamlar og sprungnar ekki fæst undanþága til aka með þungan krana milli landshluta. Í staðinn þarf sigla með hann til Færeyja og aftur heim.

September var kaldasti frá árinu 2005. Sólskinsstundirnar í haust hafa hins vegar verið mun fleiri en í meðalári.

Víkingur og Breiðablik eru jöfn stigum í efstu deild karla í fótbolta og aðeins tvær umferðir eftir.

Frumflutt

7. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,