Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 29. ágúst 2024

Fylgistap Sjálfstæðisflokksins kann skýrast af því Miðflokknum hafi tekist betur setja borgaraleg hægri gildi á dagskrá, segir ritari Sjálfstæðisflokksins. Prófessor í stjórnmálafræði segir nýja skoðanakönnun pólitísk stórtíðindi og hrikta hljóti í stoðum í Valhöll.

Pétur Jökull Jónasson hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir sinn þátt í smygla hundrað kílóum af kókaíni til landsins.

Foreldrar á Akureyri vilja brugðist verði við eftir unglingspiltur ógnaði yngri börnum með hníf um helgina. Forstöðumaður Barnaverndar Eyjafjarðar segir fólk verði treysta því tekið fast á málum sem þessu.

Fimm voru drepnir í hernaðaraðgerðum Ísraelshers í mosku á Vesturbakkanum í morgun. Alþjóðastofnanir óttast átökin breiðist út til annarra landa.

Engin varnaðarorð var finna í skýrslu vísindamanna frá 2017 um íshellaskoðanir á sumrin, segir fyrrverandi stjórnarformaður Vatnajökulsþjóðgarðs. Engum hafi heldur dottið í hug leggja í hellaferðir á þeim árstíma.

Hótanir í garð nýju matvöruverslunarinnar Prís hafa ekki komið til Samkeppniseftirlitsins. Forstjóri þess segir heildsala stundum ekki geta rökstutt mikinn afslátt til stærstu matvörukeðjanna.

Bændasamtökunum hugnast illa erlend fyrirtæki kaupi jarðir matvælaframleiðenda undir skógrækt. Íslenskir bændur eigi vera í fararbroddi í skógrækt til kolefnisjöfnunar.

Róbert Ísak Jónsson keppir síðdegis til úrslita í 100 metra flugsundi á Ólympíumóti fatlaðra í París. Hann tryggði sig áfram úr undanriðlum í morgun.

Frumflutt

29. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,