Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 23. ágúst 2024

Dregið hefur úr krafti eldgossins sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni í gærkvöld. Dökkur gosmökkur stígur upp þegar kvika kemst í snertingu við vatn. Gosið sést vel frá Reykjanesbraut og dæmi eru um fólk gangi gosinu illa búið.

Gæsluvarðhalds verður krafist síðar í dag yfir manni sem handtekinn var í gær, grunaður um eiga hlut andláti hjóna í Neskaupstað. Rannsókn lögreglu beinist meðal annars því hvort vopni hafi verið beitt við verknaðinn.

Flytja þurfti í morgun fimmtíu skólabörn til byggða sem voru á ferð Fjallabaki þegar fimmtán þeirra veiktust. Þetta er í annað sinn sem hópsýking kemur upp í hálendisferðum í mánuðinum.

Flætt hefur inn í kjallara í minnst sex húsum á Siglufirði í miklu vatnsveðri. Dæla í fráveitukerfi er biluð og önnur hefur ekki undan.

Kamala Harris hét því verða forseti allra Bandaríkjamanna og varaði við afleiðingum ef andstæðingur hennar, Donald Trump, næði kjöri í kosningunum fimmta nóvember. Fjögurra daga landsfundi Demókrata lauk í gærkvöldi.

Óskar Örn Hauksson, leikjahæsti fótboltamaður efstu deildar frá upphafi, fagnaði fertugsafmæli sínu með því skora mark þegar hann kom inn á sem varamaður í Evrópuleik Víkinga í gærkvöld. Liðið fór langleiðina tryggja sér sæti í deildakeppni Sambandsdeildarinnar.

Frumflutt

23. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,