Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 13.ágúst 2024

Reykkafarar náðu manni úr brennandi íbúð í miðborg Reykjavíkur í morgun og var hann fluttur á slysadeild. Íbúar í tveimur öðrum íbúðum í húsinu komust út af sjálfsdáðum.

Innrás Úkraínumanna í Kúrsk hérað í Rússlandi linnir um leið og Rússar fallast á réttlátan frið, tilkynntu stjórnvöld í Kyiv í morgun. Úkraínumenn segjast hafa náð um eitt þúsund ferkílómetra svæði í héraðinu á sitt vald.

Framkvæmdastjóri Landverndar segir skorta heildarstefnu um nýtingu vindorku á Íslandi áður en vindaflsvirkjun við Búrfell verður veruleika. Orkustofnun veitti Landsvirkjun í gær leyfi til reisa 30 vindmyllur sem hver verður allt 150 metra há.

Útbreiðsla makríls við Ísland hefur ekki mælst minni frá því Hafrannsóknarstofnun hóf rannsóknir árið 2010. Leiðangursstjóri segir ballið gæti næstum verið búið hvað varðar makrílgengd inn í íslenska landhelgi.

Milljarðamæringurinn Elon Musk fór fögrum orðum um Donald Trump, forsetaframbjóðanda í samtali sem þeir áttu á samfélagsmiðlinum X í gærkvöld. Trump fór mikinn um innflytjendamál og alla vankanta núverandi forseta Bandaríkjanna.

Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir þörf á umræðu um gjaldfrjáls námsgögn og skólamáltíðir. Huga verði rekstri sveitarfélaga sem oft stillt upp við vegg.

Frumflutt

13. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,