Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 5. ágúst 2024

Breska ríkisstjórnin boðaði til neyðarfundar í morgun vegna mótmælaöldu í landinu. Stjórnvöld erlendra ríkja vara við ferðum til Bretlands. Mótmælendur kveiktu í gær í hóteli í Rotherham sem hýsir hælisleitendur.

Nokkur hundruð leituðu skjóls í Herjólfshöllinni vegna veðurs á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Í Neskaupsstað þurfti færa stórtónleika Neistaflugs inn í reiðhöllina.

Hrun varð á hlutabréfamörkuðum víða um heim í morgun. Virði hlutabréfa í Japan hefur ekki lækkað meira síðan 1987. Áhyggjur af efnahagsástandinu vestanhafs er talin helsta ástæða lækkunarinnar.

Foreldrar á Akureyri eru óánægðir með fátæklegt framboð sumarnámskeiða. Forseti bæjarstjórnar segir þetta til skoðunar en námskeiðum verði ekki fjölgað í ágúst.

Yfirvöld í Ástralíu hafa hækkað viðbúnaðarstig vegna hryðjuverka. Þau eru ekki talin hugsanleg heldur líkleg. Leyniþjónusta landsins segir hættan stafi helst af öfgafullri hugmyndafræði.

Forsætisráðherra Bangadess hrökklaðist frá völdum í morgun og flýði til Indlands. Tæplega hundrað létust í óeirðum í landinu í gær.

Hátíðahöld um helgina voru vel heppnuð þrátt fyrir veður hafi sett strik í reikninginn víða. Harmonikkuhátíð á Borg í Grímsnesi var fjölmennasta sem haldin hefur verið til þessa.

Frumflutt

5. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,