Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 4. ágúst 2024

Leit stendur yfir í Vestmannaeyjum ungum manni sem síðast sást í Herjólfsdal í nótt. Björgunarbátur hefur verið ræstur út og lögreglustjóri segir landhelgisgæslan verði kölluð til ef hann finnst ekki innan skamms.

Talsverður erill var hjá Lögreglunni á Akureyri í nótt. Fjölmennt var í bænum fram eftir morgni, og fjórir gistu fangageymslur

Djúp lægð er á leið upp landinu sem valda mun leiðindaveðri í dag og á morgun. Gular viðvaranir taka gildi síðar í dag.

Drápið á Hamas leiðtoganum Ismail Haniyeh setur viðræður um frið á Gaza í uppnám. Ættingjar gísla sem eru í haldi Hamas eru úrkula vonar um þeim verði sleppt.

Þrír fangaverðir leituðu aðhlynningar á spítala eftir fangi á Litla-hrauni réðst fyrirvaralaust á þá. Formaður fangavarðafélags Íslands segir slík atvik vera færast í aukana.

Makrílveiði íslenskra skipa í Síldarsmugunni hefur verið afar róleg og aðeins nokkrir tugir tonna fást í hverju hali. Áfram verður þó leitað.

Örlítil aukning er á skjálftavirkni á Reykjanesskaga - enn er búist við kvikuhlaupi og jafnvel gosi á næstunni.

Frumflutt

4. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,