Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 2. ágúst 2024

Sveitarstjórinn í Mýrdalshreppi segir löngu tímabært uppfæra viðbragðsáætlun vegna Kötlugoss.

Innviðaráðherra segir það áskorun búa í návígi við Mýrdalsjökul. Kortleggja þurfi náttúruvá betur og hafa varann á.

Glæpamenn í Danmörku láta sænsk ungmenni í auknum mæli fremja fyrir sig ofbeldisverk. Tveir sænskir unglingar eru í haldi eftir skotárásir í gær.

Aurskriða féll á Strandaveg í Árneshreppi og er vegurinn lokaður. Veðurstofan varar við skriðuföllum bæði á Suðurlandi og á Ströndum um helgina.

Mikil umræða var á samfélagsmiðlum í gær um hnefaleikakonuna Imane Kjelif. Formaður Samtakanna 78 segir hana mögulega í lífshættu.

Skipuleggjendur og gestir á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eru viðbúnir gulri veðurviðvörun frá Veðurstofu Íslands. Gestur í Herjólfsdal segir veðrið dragi ekki úr gleðinni.

Veðrið var almennt fremur óhagstætt í júlí miðað við árstíma. Rigningarmet féllu á Vesturlandi og sólskinsstundir voru verulega fáar í Reykjavík.

Frumflutt

2. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,