Ísrael gerði árás á kirkju á Gaza í nótt. Flutningabílar hlaðnir hjálpargögnum bíða enn eftir að komast til íbúa Gaza. Vel á annað hundrað mætti á samstöðufund við Ráðherrabústaðinn í morgun og krafðist þess að íslensk stjórnvöld fordæmdu hernað Ísraela.
Yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu viðurkennir að hún hafi gert mistök við vettvangsrannsókn í manndrápsmáli í Drangahrauni. Dóttir hins látna fann mögulegt morðvopn í íbúð föður síns í vikunni, fjórum mánuðum eftir að lögregla gerði húsleit og yfirsást hnífurinn.
Á öðrum degi Hringborðs norðurslóða verður meðal annars rætt um stefnu stórvelda á norðurslóðum, loftslagsmarkmið og varnarmál.
Miklar breytingar á lífríki hafsins við Ísland og hröð súrnun þess komu lífeðlisfræðingi Hafrannsóknastofnunar mest á óvart við könnun vísindanefndar loftslagsmála á ástandi sjávar.
Slökkvilið fær rýmri heimildir til úttektar á íbúðarhúsnæði, nái breytingar á lögum um brunavarnir fram að ganga og hægt verður að skrá búsetu í atvinnuhúsnæði.
Rjúpnaskytta á Egilsstöðum segir veður óhentugt og snúið að finna fugl á fyrsta degi veiðinnar. Veiða má alla daga vikunnar nema miðvikudaga og fimmtudaga. Veiðimenn telja ekki þörf á þeim takmörkunum, menn sýni hófsemi og veiði í jólamatinn fyrir sig og sína.
Hollywood-leikarar geta talist verkfallsbrjótar klæðist þeir hrekkjavökubúningum sem byggjast á þekktum persónum af hvíta tjaldinu. Þeir hafa verið í verkfalli síðan í sumar.